ASÍ styður kjarabaráttu sjómanna
Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við verkföll og kjarabaráttu sjómanna og vélstjóra við samtök fyrirtækja í sjávarútvegi með ályktun miðstjórnar. „Útgerðarmenn hafa árum saman neitað að ganga til kjarasamninga við sjómenn og vélstjóra og sett fram óbilgjarnar kröfur um að launafólk greiði verulegan hluta af eðlilegri greiðslu fyrirtækjanna fyrir afnot af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar.
Miðstjórn ASÍ skorar á samtök atvinnurekenda að ganga nú þegar til kjarasamninga við sjómenn og vélstjóra. Miðstjórnin fordæmir jafnframt þau verkfallsbrot sem framin hafa verið og skorar á útgerðarmenn að virða löglega boðaðar aðgerðir sjómanna,“ segir í ályktuninni.