Skyndilokanir í verkfalli

Deila:

Hafrannsóknastofnun gefur nú út hverja skyndilokunina á fætur annarri.  Þann 13. janúar var næstum búið að fylgja dagafjölda frá áramótum – alls 12 lokanir höfðu þá komið til framkvæmda samkvæmt frétt á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda. Þar segir ennfremur:

„Ekki hefur tekist að ná upplýsingum af vefsvæði Hafró né hafogvatn.is til að bera saman við árið í fyrra.  Hins vegar kemur fram í frétt hér á heimasíðunni þann 18. febrúar 2015 að þá hafði verið lokað 13 sinnum frá áramótum eða aðeins einni fleiri en nú á fyrstu 13 dögum ársins.

Það er því hægt að segja með nokkurri vissu að nú sé aldeilis tekið til hendinni varðandi friðun á Íslandsmiðum.“

Ljósmynd Þorgeir Baldursson.

 

Deila: