Rannsaka áhrif blöðruþangs á bólguþætti

Deila:

Matís og rannsóknarstofa í Öldrunarfræðum, Landakoti 5L, óska nú eftir þátttakendum í rannsókn sem hlotið hefur samþykki Vísindasiðanefndar.

Þátttakendur þurfa að vera fullorðnir einstaklingar, 40 ára og eldri með líkamsþyngdarstuðul (BMI) ≥ 27 kg/m2 og mittisummál ≥ 88cm hjá konum og ≥ 102 cm hjá körlum. Þátttakendur sem stunda hreyfingu meira en 30 mín/dag eru útilokaðir frá þátttöku sem og þungaðar konur eða konur með barn á brjósti. Einstaklingar sem hafa samband og hafa áhuga að taka þátt í rannsókninni þurfa að draga úr neyslu á matvælum sem innihalda omega-3 og forðast lýsi í 2 vikur áður en íhlutun hefst og  meðan á þátttöku stendur.

  • Markmið rannsóknarinnar er að kanna áhrif blöðruþangs á bólguþætti hjá of þungum, fullorðnum einstaklingum, ásamt því að kanna hvort blöðruþang hafi áhrif á aðrar lífeðlisfræðilegar breytur (blóðsykur og blóðfitur)
  • Þátttakendum verður af handahófi skipt upp í tvo hópa sem fá annað hvort :
    a)  Blöðruþangsduft (3 hylki = 1200 mg/dag) í 10 vikur  b) Lyfleysu duft (3 hylki/dag) í 10 vikur.
  • Þátttaka í rannsókninni felst í því að mæta í byrjun og lok tímabils í líkamsmælingar og lífssýnatöku, ásamt því að svara almennum spurningarlista um mataræði og heilsufar við upphaf rannsóknar. Framkvæmdar verða mælingar á líkamssamsetningu, mittisummáli, hæð og þyngd. Helstu mælingar í blóði eru bólguþættir, blóðsykur og fitur í blóði.
  • Blöðruþang (Fucus vesiculosus) er ríkt af joði, ómeltanlegri sterkju, salti og lífvirkum efnum. Blöðruþangs duft verður til þegar ákveðin lífvirk efni eru dregin út úr blöðruþanginu og einangruð. Þessi lífvirku efni eru sett í hylki úr gelatíni til að auðvelda inntöku. Notkun á blöðruþangi til manneldis er þekkt og rannsóknir á lífvirkum efnum í blöðruþangi benda til þess að duft úr blöðruþangi gæti haft jákvæð áhrif á lífeðlisfræðilegar breytur (bólguþætti og blóðsykur).
  • Ekki er greitt fyrir þátttöku.

Áhugasamir sem uppfylla ofangreind skilyrði eru beðnir um að hafa
samband við Anítu Sif Elídóttur í síma 844-7131 eða senda tölvupóst á anitas@landspitali.is

 

Deila: