Gremja í garð ráðherra

Deila:

Ákveðinnar gremju og óþreyju gætir í röðum útgerðarmanna í garð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, sjávarútvegsráðherra og Benedikts Jóhannessonar, fjármálaráðherra, vegna andvaraleysis ráðherranna gagnvart verkfalli sjómanna samkvæmt frétt í Morgunblaðinu í dag.

„Í samtölum við útgerðarmenn í gær kom þessi gagnrýni fram, þótt útgerðarmenn væru með orðum sínum ekki að vísa frá sér og sjómönnum þeirri ábyrgð sem þeir bera á að leysa deiluna en vísuðu til þess að stjórnvöld réðu yfir ákveðnum tækjum til þess að höggva á hnúta.

Sömuleiðis hefur Morgunblaðið heimildir fyrir því að í þingflokki Sjálfstæðisflokksins sé farið að gæta óþreyju gagnvart aðgerðaleysi ofangreindra ráðherra. Lilja Alfreðsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag, að ríkisstjórnin geti ekki látið reka á reiðanum þegar helsta atvinnugrein landsmanna er í lamasessi. Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, á von á stuttum sáttafundi í dag. Ekkert nýtt hafi komið frá viðsemjendum sem gefi tilefni til þess að samningar gætu tekist,“ segir í Morgunblaðinu.

Samkvæmt yfirlýsingum frá bæði sjómönnum og útvegsmönnum hefur strandað á olíuverðsviðmiðun og endurheimt sjómannaafsláttar í samningaviðræðunum nú. Sjómannaafslátturinn var fyrst settur á á sjötta áratugnum til að liðka fyrir samningum við sjómenn, en staða útvegsins á þeim tíma var mjög erfið. Afslátturinn var svo afnuminn af ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, en Steingrímur J. Sigfússon var þá fjármálaráðherra. Í samningalotunni síðastliðið haust var komið vilyrði frá þáverandi fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssyni, um skattleysi af ákveðinni upphæð dagpeninga. Það vilyrði virðist hafa fallið niður með myndun núverandi ríkisstjórnar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegsráðherra, hefur lýst því yfir að ekki verði sett lög á verkfallið. Á hinn bóginn gæti einhver íhlutun stjórnvalda líklega liðkað til fyrir lausn deilunnar og hljóta skattfríir dagpeningar að vera hluti af henni. Í því samhengi má benda á að flugmenn og flugfreyjur njóta slíkra fríðinda á grundvelli þess að verið sé að vinna fjarri heimili.
Meðfylgjandi mynd er fengin af heimasíðu Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur, en Kristinn Bendiktsson tók myndina.

 

Deila: