Minna á mikilvægi strandveiða

Deila:

Strandveiðifélagið Krókur í Barðastrandarsýslu lýsir í ályktun sinni yfir ánægju og stuðningi við frumvörp til breytinga og úrbóta á strandveiðikerfinu og hvetur alþingismenn allra flokka til að styðja breytingar sem þar koma fram, sem stuðla að meira öryggi við veiðarnar.

„Strandveiðifélagið Krókur vill minna háttvirta alþingismenn á mikilvægi strandveiða fyrir alla landsbyggðina og að kröfur strandveiðimanna séu sanngjarnar og breytingar tímabærar.

Strandveiðifélagið Krókur ítrekar ennfremur kröfur Landssambands smábátaeigenda;
„Strandveiðar til framtíðar“, þ.e. 4 mánuðir, 4 daga í viku, 4 rúllur á bát, 650 þíg. kg í róðri,“ segir í ályktun Króks.

 

Deila: