Nefnd um veiðigjöld skipuð

Deila:

Gengið hefur verið frá skipan nefndar til að móta tillögur um hvernig tryggja megi sanngjarna gjaldtöku fyrir afnot af fiskveiðiauðlindinni. Formaður nefndarinnar er Þorsteinn Pálsson sem skipaður er af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Þorsteinn gegndi embætti sjávarútvegsráðherra í átta ár frá 1991-1999. Nefndin er að öðru leyti skipuð samkvæmt tilnefningum allra stjórnmálaflokka sem eiga fulltrúa á Alþingi. Nefndin skal skila tillögum sínum til ráðherra í formi lagafrumvarps eigi síðar en 1. desember 2017.

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að unnið verði að mati á þeim kostum sem tækir eru til gjaldtöku fyrir afnot sjávarauðlindarinnar, svo sem markaðstengingu, sérstöku afkomutengdu gjaldi eða öðrum leiðum, í því skyni m.a. að tryggja betur að gjald fyrir aðgang að sameiginlegri auðlind verði í eðlilegu hlutfalli við afrakstur veiðanna.

Markmiðið er að tillögur nefndarinnar geti orðið grundvöllur að þverpólitískri og víðtækri sátt í samfélaginu um sjávarútveginn og þar með grunnur að auknum stöðugleika í starfsumhverfi hans og tengdra greina til framtíðar.

Eftirtaldir sitja í nefndinni:

  •        Hanna Katrín Friðriksson – fyrir Viðreisn
  •        Logi Einarsson – fyrir Samfylkingu
  •        Mörður Ingólfsson – fyrir Pírata
  •        Páll Pálsson – fyrir Framsóknarflokk
  •        Svandís Svavarsdóttir – fyrir VG
  •        Teitur Björn Einarsson – fyrir Sjálfstæðisflokk
  •        Theodóra S. Þorsteinsdóttir – fyrir Bjarta framtíð
  •        Þorsteinn Pálsson, formaður

 

 

Deila: