Síðasti dagur á grásleppu 26. júní

Deila:

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur gefið út reglugerð sem er breyting á reglugerð um hrognkelsaveiðar 2017.  Samkvæmt reglugerðinni er síðasti dagur grásleppuveiða  2017 á svæðum A, B og C þann 26. júní nk.

Veiðitímabilið var framlengt til að mæta  lengdum gildistíma veiðileyfa.  Fiskistofa hefur  framlengt veiðileyfi þeirra báta sem  málið varðar og er endurskoðað veiðileyfi aðgengilegt viðkomandi útgerðum á þjónustusvæði Ugga.

Deila: