Helmingur báta með umframafla

Deila:

Á svæðum B til D í maí fóru alls 155 bátar framyfir 650 kg hámarkið í slægðum afla sem landa má í einni veiðiferð. Alls stunduðu 287 bátar strandveiðar á þessum svæðum í mánuðinum og því lentu um 54% þeirra í einhverjum umframafla samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu.

Fiskistofa umframafli í Maí

Uppsafnaður umframafli mánaðarins var vissulega mjög misjafn eftir bátum eða frá einu kílói upp í 642 kíló.

Sá bátur sem veiddi mestan umframafla á þessum svæðum var Birta SU-36 með 642 kg en hann er gerður út á svæði C. Næstur kom Snjólfur SF-65 með 442 kg. Í töflunni hér að neðan má sjá þá tíu báta sem fóru mest framúr á hverju svæði fyrir sig í maí mánuði.

Fiskistofa umframafli í Maí 1

Fiskistofa minnir á að andvirði alls umframafla á strandveiðum verður innheimt af útgerðunum og rennur til ríkisins í Verkefnasjóð sjávarútvegs. Umframaflinn dregst eftir sem áður frá leyfilegum heildarafla á strandveiðunum svo að minna verður til skiptanna. Það er því hagur allra strandveiðimanna að veiða ekki umfram heimildir. Alls nam umframafli strandveiðibáta á þessum svæðum í maí tæpum 15 tonnum.

Aflahæsti strandveiðibáturinn á þessum svæðum er líkt og á svæði A í maí – klárlega ríkið!

 

 

Deila: