Sjómannadagur í 80 skipti

Deila:

Sjómannadagurinn er næstkomandi sunnudag 11. júní.  Dagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur 6. júní 1938 og er dagurinn í ár því sá 80. í samfelldri sögu hans.  Fjallað er um þetta á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda og segir þar svo:

Í athugasemdum við frumvarp til laga um sjómannadag sem lagt var fram á Alþingi 1986 segir m.a. þetta:

„Í upphafi sögunnar lagði sjómannastéttin og forustumenn hennar ekki megináherslu á að sjómannadagurinn yrði almennur frídagur sjómanna enda var lífsbaráttan lengst af svo hörð að enga stund mátti missa frá því að afla sér og sínum viðurværis.“
Og síðar í kaflanum:
„Nú þegar nær hálf öld er liðin síðan sjómannadagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur sýnist hins vegar tímabært að koma fastri skipan á frí sjómanna þann dag.  Væri það táknræn kveðja Alþingis og þjóðarinnar allrar til sjómannastéttarinnar á þessum tímamótum.  Í frumvarpi þessu er því slegið föstu að sjómannadagurinn skuli vera almennur frídagur sjómanna.“
Frumvarpið var samþykkt samhljóða í Efri deild Alþingis 16. mars 1987.

Lög um sjómannadag

Meðfylgjandi mynd er frá Hátíð hafsins á sjómannadegi í Reykjavík.

Deila: