Góð kolmunnaveiði í lögsögunni

Deila:

Góð kolmunnaveiði hefur verið í íslenskri lögsögu í júlí síðastliðnum en alls bárust 17.400 tonn til Síldarvinnslunnar. Bjarni Ólafsson AK aflaði tæpum 6.400 tonna, Börkur NK 5.400 tonna, Beitir NK 3.300 tonna og önnur skip 2.300 tonna.

Bjarni Ólafsson AK kom með fullfermi til Neskaupstaðar alls fjórum sinnum í júlí. Að sögn Gísla Runólfssonar skipstjóra á Bjarna Ólafssyni AK gekk veiðin framar vonum og  voru þeir að fylla í aðeins 5-6 holum. „Sumir vilja meina að við höfum verið heppnir en þetta snýst ekkert um heppni heldur lagni og þolinmæði“ segir Gísli í samtali á heimasíðu síldarvinnslunnar.

Nú hafa skip Síldarvinnslunnar hins vegar gert hlé á kolmunnaveiðum og snúið sér til makrílveiða.

 

Deila: