Skaginn 3X selur stærsta SUB-CHILLING™ kerfi frá upphafi til Kråkøy Slakteri í Noregi

Deila:

Hátæknifyrirtækið Skaginn 3X og norska Laxavinnslan Kråkøy Slakteri skrifuðu nýlega undir samning um kaup þess síðarnefnda á SUB-CHILLING™ kerfi. Þetta er annað SUB-CHILLING™ kerfið sem selt er til Noregs sem af er þessu ári en uppsetning á fyrsta kerfinu lauk í apríl. Hér á landi hafa Arnarlax, Fisk Seafood og HB Grandi þegar innleitt SUB-CHILLING™ í sína framleiðslu. Kerfið sem selt hefur verið til Kråkøy Slakteri verður stærsta SUB-CHILLING™ kerfi sem Skaginn 3X  hefur framleitt fram að þessu, með vinnslugetu upp á 25 tonn á klukkustund.

Gæðin aðalatriðið

Kråkøy Slakteri er laxavinnsla sem er staðsett í Roan í Suður-Þrændalögum í Noregi. Fyrirtækið slátrar fyrir stóra laxaframleiðendur á svæðinu og fjárfesting þeirra í SUBCHILLING™ er partur af stærri fjárfestingu við að stækka verksmiðjuna. Roger Sorgård, eigandi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að þegar farið hafi verið í að skoða þær lausnir sem í boði voru, þá hafi vörugæði og stöðugleiki í framleiðslu haft mest um það að segja hvaða leið var valin.

„Við erum stolt af því að vera meðal fyrstu laxavinnsla í Noregi til þess að innleiða þessa nýju vinnslutækni. Með tilkomu SUB-CHILLING™ þá munum við geta boðið viðskiptavinum okkar upp á betri gæði og meira virði þar sem okkar vara mun hafa töluvert lengra geymsluþol í samanburði við hefðbundnar vinnsluaðferðir“ segir Roger Sorgård.

Fyrir utan aukin gæði, þá býður þessi tækni upp á mikla hagræðingarmöguleika fyrir viðskiptavini Rogers „Við erum að horfa til þess að minka ís sem við sendum í kössum með flugi úr 3,0 kg. niður í 0,5 kg. sem mun skila sér í töluverðum sparnaði í flutningskostnaði“ segir Roger Sorgård.

Aukið geymsluþol og lægri flutningskostnaður

„Aukið geymsluþol, um 5-7 daga, er mjög eftirsóttur og verðmætur þáttur fyrir viðskiptavini okkar ásamt því að sparnaður næst með lægri flutnings- og efniskostnaði. Þetta eru allt mjög mikilvægir þættir en það sem mestu máli skiptir er að SUB-CHILLING™ tæknin tryggir okkur betri og stöðugri gæði yfir allt árið í kring“ Segir Thomas Williksen, Verkefnastjóri hjá Kråkøy Slakteri.

SUB-CHILLING™ – Margverðlaunuð íslensk nýsköpun

Frábrugðið hefðbundnum vinnsluaðferðum, getur SUB-CHILLING™ aðferðin kælt fisk niður undir -1°C á skömmum tíma, án þess þó að frysta fiskinn. Þessi nýja tækni hefur vakið mikla athygli á alþjóðavísu og hefur Skaginn 3X hlotið fjölda verðlauna að undanförnu, þar með talið Nýsköpunarverðlaun Íslands, Útflutningsverðlaun forseta Íslands og framúrstefnuverðlaun Sjávarútvegsráðstefnunnar.

Myndin: Frá vinstri: Thomas Williksen, verkefnastjóri hjá Kråkøy Slakteri – Ragnar Guðmundsson, sölustjóri yfir Skandinavíu hjá Skaginn 3X – Roger Sorgård, framkvæmdarstjóri hjá Kråkøy Slakteri.

https://www.youtube.com/watch?v=D-BUmX-k6UQ
https://www.youtube.com/watch?v=EmfJptgchoc

Deila: