Gullkarfi með mexíkósku ívafi

Deila:

Einu sinni fór karfi bara í gúanó. Þótti ekki mannamatur vegna einhverskonar hindurvitni eða vanþekkingar. Nú er öldin önnur og allir vita að það er fleira matur en feitt kjöt. Feitur og bragðmikill fiskur er algjört lostæti og þar er karfinn ofarlega á blaði. Nú má fá karfa í flestum betri fiskbúðum og víða er að finna uppskriftir að góðum réttum úr karfa.
Fyrirtækið Norðanfiskur á Akranesi hefur hafið sölu á ferskum karfaflökum auk fleiri fisktegundum í neytendaumbúðum og á heimasíðu fyrirtækisins er að finna fjölmargar góðar uppskriftir að fiskréttum. Þetta er ein þeirra og er hún fyrir fjóra.

Innihald:  

800 g gullkarfahnakkar

1 stk mexíkóostur

250 ml rjómi

1 teningur grænmetiskraftur

Maizena kornsterkja

10 stk kirsuberjatómatar

½ rauðlaukur, sneiddur

1 lúka ferskt kóríander

2 lúkur tortilla-flögur

Aðferð:

Leggið fiskinn í eldfast form, saltið og piprið yfir. Skerið ostinn í teninga og setjið í pott, setjið vatn í pottinn sem fer yfir ostinn, sjóðið þar til osturinn hefur leysts upp. Bætið rjómanum og grænmetiskraftinum út í, fáið upp suðu aftur og þykkið örlítið með ljósum maizena þykki. Hellið helmingnum af sósunni yfir fiskinn, skerið tómatana, laukinn og kóríander og dreifið yfir. Hellið restinni af sósunni yfir, myljið flögurnar og dreifið yfir.

Eldið í 18–20 mín í 200°C heitum ofni. Gott er að setja fiskinn inn í mjúkar tortillur og bæta við sýrðum rjóma og salati.

„Höfundur uppskriftarinnar er Oddur Smári Rafnsson. Hann hefur víðtæka reynslu úr veitingageiranum og hefur meðal annars starfað í Perlunni, hjá Skútunni í Hafnarfirði og hjá Fiskisögu. Hann starfaði einnig sem yfirmatreiðslumaður á Saffran og hannaði matseðil staðarins. Oddur hefur unnið mikið í vöruþróun fyrir innflutningsfyrirtæki og fjölda veitingastaða á Íslandi. Honum finnst fátt skemmtilegra en að matreiða góðan mat og njóta hans með góðu fólki,“ segir á heimasíðu Norðanfisks.

 

 

Deila: