Makrílveiðar smábáta hafnar
Makrílveiðar smábáta eru hafnar. Veiðisvæðið er útaf Keflavíkurhöfn. Rúmur tugur báta er þar að veiðum og er þétt setinn bekkurinn. Makríllinn sem veiðist er með besta móti – stór og pattaralegur – mikið af honum stærri en 600 grömm.
Úthlutað hefur verið viðbótaraflaheimildum í makríl vegna umsókna sem bárust í síðustu viku skv. reglugerð nr. 696/2017. Fjöldi umsókna að þessu sinni voru 12 og voru 8 samþykktar. Öðrum umsóknum var hafnað þar sem skip uppfylltu ekki kröfu um veiðiskyldu, stærðarmörk eða greiðslu.
Úthlutunin að þessu sinni var 280.000 kg. Heildarúthlutun þessa árs er því 280.000 kg og því eru 1.720.000 kg eftir í pottinum sem verða til sölu í næstu viku.
Eftirfarandi skip fengu úthlutun:
Skip nr. | Heiti | Magn (kg) |
1511 | Ragnar Alfreðs GK-183 | 35000 |
2810 | Sunna Rós SH-123 | 35000 |
2419 | Rán SH-307 | 35000 |
1831 | Hjördís HU-16 | 35000 |
2595 | Tjúlla GK-29 | 35000 |
2775 | Skalli HU-33 | 35000 |
5907 | Fengur GK-133 | 35000 |
2871 | Agla ÁR-79 | 35000 |