Nóg af síld og vinnsla gengur vel

Deila:

Beitir NK byrjaði að landa 1.235 tonnum af norsk-íslenskri síld til vinnslu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað í gær. Væntanlega verður lokið við að landa úr honum í kvöld. Á undan Beiti landaði Bjarni Ólafsson AK 730 tonnum.

Jón Gunnar Sigurjónsson yfirverkstjóri í fiskiðjuverinu segir í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar. að síldin sé nokkuð blönduð en það gangi vel að vinna hana. Síldin er bæði flökuð og heilfryst. Jón Gunnar segir að gert verði hlé á vinnslunni á föstudagskvöld og þá fái starfsfólk fiskiðjuversins helgarfrí.

Börkur NK kom til hafnar á mánudag undan brælu og eins til að taka nýtt troll. Hálfdan Hálfdanarson skipstjóri segir að það sé töluvert af síld að sjá á miðunum. „Við komum með 510 tonn sem við fengum í tveimur holum í Seyðisfjarðardýpinu um 40-50 mílur frá landi. Nú má gera ráð fyrir að síldin fari að færa sig í austurátt og þá þarf að elta hana eitthvað lengra,“ sagði Hálfdan.

 

Deila: