Auglýst eftir tilboðum í aflamark
Fiskistofa auglýsir nú eftir tilboðum í skipti á aflamarki. Í boði er neðangreint aflamark, í tilgreindum tegundum, í skiptum fyrir aflamark í þorski. Við mat tilboða er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar. Viðmiðunarverð síðasta mánaðar: þorskur 238,18 kr/kg.
Tilboðsmarkaðurinn var opnaður í gær 2019. Ekki koma til álita tilboð þar sem aflamark sem boðið er, nær ekki 50% þorskígilda þeirrar tegundar sem óskað er eftir.
Athugið að samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu ber að greiða 12.900 krónur fyrir hverja úthlutun aflaheimilda á tilboðsmarkaði. Þannig ber tilboðsgjafa að greiða þá upphæð fyrir hvert tilboð sem tekið er að fullu eða að hluta.
Fisktegund | Þíg | Aflamark | |
Ufsi | 0,55 | 420.138 | kg |
Gullkarfi | 0,69 | 822.488 | kg |
Blálanga | 0,65 | 20.479 | kg |
Hlýri | 0,77 | 17.888 | kg |
Skötuselur | 1,81 | 20.416 | kg |
Gulllax | 0,39 | 483.572 | kg |
Grálúða | 2,27 | 587.412 | kg |
Skarkoli | 0,94 | 340.589 | kg |
Langlúra | 0,59 | 52.027 | kg |
Sandkoli | 0,27 | 19.455 | kg |
Skrápflúra | 0,37 | 731 | kg |
Síld | 0,13 | 1.832 | tonn |
Úthafsrækja | 1,24 | 248.146 | kg |
Litli karfi | 0,35 | 36.941 | kg |
Djúpkarfi | 0,84 | 662.076 | kg |
Eingöngu er unnt að gera tilboð í gegnum UGGA, upplýsingagátt Fiskistofu. Tilboðsmarkaðinn má finna undir Umsóknir/Þjónusta. Vakin er athygli á að Ugginn sendir sjálfkrafa staðfestingu um móttöku tilboðs.
Afturköllun tilboða eftir að umsóknarfrestur er runninn út er ómheimil. Að gefnu tilefni er rétt að benda bjóðendum á að skv. 3. mgr. 5. gr. reglugerðar 630/2017 sem fjallar um þennan tilboðsmarkað, eru það eingöngu bjóðendur, ekki Fiskistofa, sem er heimilt að afturkalla tilboð svo lengi sem þeir gera það áður en tilboðsfrestur er liðinn. Því er mikilvægt að yfirfara tilboð vel áður en því er skilað og skoða tilboðið undir „Málin mín“ í UGGA eftir að tilboðinu hefur verið skilað til að tryggja að allt sé rétt. Ef mistök hafa átt sér stað við tilboðsgerð þá getur bjóðandi afturkallað tilboðið í UGGA allt þar til tilboðsfrestur rennur út.
Frestur til að skila tilboðum er til kl. 16:00 fimmtudaginn 17. október 2019.