Örfirisey dregin til hafnar í Noregi

Deila:

Það óhapp varð í rússnesku lögsögunni í Barentshafi í nótt að bilun varð á skrúfubúnaði frystitogarans Örfiriseyjar RE. Skipið getur ekki siglt fyrir eigin vélarafli og því verður það dregið til Noregs.

Hjá HB Granda fengust þær upplýsingar að óhappið hefði orðið um klukkan tvö í nótt. Gott veður er á svæðinu og engin hætta talin á ferðum. Að höfðu samráði við tryggingarfélag skipsins hefur orðið að samkomulagi að olíuskipið M/T Norsel taki Örfirisey í tog og dragi skipið til hafnar í Noregi. Þar verður tjónið metið og ákveðið hvar viðgerð fari fram.
Norsel kemur að Örfirisey um klukkan 14:30 í dag. Frá þeim stað til hafnar í Noregi eru um 440 sjómílur og munu því skipin væntanlega ekki koma til hafnar fyrr en eftir þrjá til fjóra sólarhringa.

 

Deila: