Vilhjálmur hlaut Svifölduna

Deila:

Svifaldan verðlaunagripurinn fyrir Framúrstefnuhugmynd Sjávarútvegsráðstefnunnar 2017 var nú veitt í sjötta sinn, en markmiðið er að efla umræður og hvetja til nýrrar hugsunar með framsæknum og frumlegum hugmyndum. Svifaldan er gefin af TM, en jafnframt var veitt verðlaunafé og viðurkenningar til þeirra sem standa að þremur bestu hugmyndunum.

Vilhjálmur Hallgrímsson, Fisheries Technologies ehf. hlaut fyrstu verðlaun í samkeppninni Framúrstefnuhugmynd Sjávarútvegsráðstefnunnar 2017.  Hugmyndin,  The Fisheries Manager, sem er nýtt alhliða upplýsingakerfi fyrir fiskveiðistjórnun og byggir kerfið á áratuga fjárfestingu og reynslu Íslendinga á þessu sviði. Með tilkomu kerfisins geta aðra þjóðir nú tileinkað sér þekkingu og reynslu sem hefur orðið til á þessu sviði hérlendis og fyrir aðeins brot af þeirri fjárfestingu sem hingað til hefur þurft. Fisheries Technologies hefur þróað hugbúnað sem kallast FishTech Framework og lýsir hugbúnaðurinn hvernig árangursrík fiskveiðistjórnun þ.e.a.s. gagnasöfnun, upplýsingakerfi og eftirlit, virkar. Hugbúnaðurinn lýsir innviðum fiskveiðistjórnunar og inniheldur öll upplýsingakerfi sem þarf til slíks reksturs. Að auki inniheldur hugbúnaðurinn helstu verkferla sem þörf er á innan vel útfærðar fiskveiðistjórnunar sem auðveldar þekkingaryfirfærslu. Hugmyndin felst í því að gera íslenska þekkingu á fiskveiðistjórnun að útflutningsgrein.

Í öðru sæti var framúrstefnuhugmyndin Ný hagkvæm ker fyrir fersk matvæli – tvíburaker, en að henni stendur Dagur Óskarsson, Sæplast Iceland ehf. Markmiðið er að þróa ker sem minnkar til muna flutnings- og geymslukostnað á sjó og landi, varðveita gæði afurðanna jafn vel eða betur og viðhalda stöflunaröryggi miðað við núverandi ker fyrir hvítfisk og frauðkassa fyrir eldisfisk.

Í þriðja sæti var framúrstefnuhugmyndin Brakandi hollusta – Samspil fisks og kartafla á nýjan hátt, en að henni stendur Rúnar Ómarsson, VAR ehf.   Afurðin er “Fish & Chips” í poka. Í pokanum, sem svipar til kartöfluflögupoka, væru 70% kartöfluflögur en 30% harðfiskur.   Dúndur-hollur og bragðgóður skyndibiti í poka.

Nánari upplýsingar um Framúrstefnuhugmyndir Sjávarútvegsráðstefnunnar 2017 er að finna í ráðstefnuhefti Sjávarútvegsráðstefnunnar sem hægt er að sækja á vef félagsins:  http://sjavarutvegsradstefnan.is/

 

Deila: