Hæstánægðir með túrinn
Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í morgun að afloknum mettúr. Skipið hélt í veiðiferðina 1. nóvember sl. og millilandaði í Neskaupstað 14. nóvember. Aflinn í túrnum var 800 tonn upp úr sjó að verðmæti 162 milljónir króna, en meginhluti aflans var ufsi.
Theodór Haraldsson skipstjóri segir í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar að vel hafi veiðst allan túrinn en veðrið hafi hins vegar verið leiðinlegt.
„Þetta er mettúr hjá okkur bæði hvað varðar afla og aflaverðmæti. Í sannleika sagt gekk allt ótrúlega vel hjá okkur þrátt fyrir veðrið. Veðurfarið var eins og það getur orðið verst á haustin, nánast enginn dagur undir 15 metrum á sekúndu. Við vorum svo til allan tímann að veiðum út af Austur- og Suðausturlandi nema þrjá daga á Reykjanesgrunni en við flúðum þangað vegna illviðris eystra. Nánast allan túrinn vorum við í ufsa og segja má að veiðar og vinnsla hafi gengið eins og best verður á kosið. Skipið hefur ótrúlega veiðigetu og við erum yfirleitt aldrei að draga allan sólarhringinn. Þá eru menn að venjast vinnsludekkinu og gengur vinnslan býsna vel. Við erum í sannleika sagt hæstánægðir með þennan túr sem nú var að ljúka, „ sagði Theodór.