Velkomin aftur um borð

Deila:

Það var Sigurður Kristjánsson á Ósk ÞH sem veiddi fyrstu grásleppu ársins 2018.  Sigurður var á þorskveiðum í Skjálfanda og lagði nokkur net í austanverðan flóann.
Að sögn Sigurðar í samtali á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda var blessunin afar vel haldin, hrogn komin í hana og sagðist hann ekki hafa séð grásleppu jafn lúsuga og þessi var.

Sigurður Kristjánsson

Sigurður Kristjánsson

Fram til þess að vertíðin hefst þann 20. mars verður hún væntanlega á þeim slóðum sem Sigurður leggur grásleppunetin.  Hann sagðist hafa sagt við hana um leið og hann sleppti henni að hún væri velkomin aftur um borð hjá sér.

 

Deila: