Brimfaxi kominn út

Deila:

Fyrir jólin kom út Brimfaxi tímarit Landssambands smábátaeigenda. Í þessu eintaki er að venju farið um víðan völl. Leiðara skrifar Axel Helgason, formaður LS og þá rifjar Örn Pálsson framkvæmdastjóri upp þróun réttindabaráttunnar sl. áratugi.

Í blaðinu er að finna opnu undir heitinu „Með og á móti“ en þar takast á ólík sjónarmið varðandi netaveiðar krókabáta.

Fiona McCormic, mannfræðingur og heimspekingur sem búsett er á Nýja Sjálandi veltir fyrir sér afleiðingum fiskveiðikerfisins þar í landi, en það kerfi er mjög líkt því sem notað er hérlendis.

Jónas R. Viðarsson greinir frá stóru rannsóknarverkefni sem hann stýrir á vegum Evrópusambandsins og Stefán Skapti Steinólfsson frá Akranesi vandar stjórnvöldum lítt kveðjurnar í pistli.

Viðtal er við Ásgrím L. Ásgrímsson hjá Landhelgisgæslunni, m.a. um mikilvægi rásar 16.  Einnig er spjallað við Glenn Blackwood frá Nýfundnalandi um grásleppumál.

Saga DNG vindunnar er rakin og minnt á mikilvægi hreinlætis í sjávarútveginum.

„Þá er fjallað um sáraeinfalda aðferð til þess að gefa handfæraveiðar smábáta frjálsar – og minnka í leiðinni núning um þeirra veiðiheimildir,“ segir í frétt á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda.

 

Deila: