Væn loðna

Deila:

,,Gærdagurinn var góður enda var ágætis veiði í góðu veðri. Í dag höfum við aðallega verið í blindbyl og brælu og veiðin hefur ekki verið neitt sérstök. Það er einhver vindstrengur hér á slóðinni sem hefur fylgt okkur. Ég var að tala við einn skipstjóra sem er með skip að veiðum nokkuð norðan við okkur og hjá honum er búin að vera blíða í allan dag.“

Þetta sagði Albert Sveinsson, skipstjóri á Víkingi AK, er heimasíða HB Granda tali af honum um miðjan dag í gær en þá var verið að ljúka við síðasta hol veiðiferðarinnar. Víkingur var þá um 90 sjómílur út af Vopnafirði og skipið var því væntanlegt til hafnar fyrir miðnætti.

Að sögn Alberts er þetta önnur veiðiferðin á loðnumiðin austur af Langanesi á nýhöfnu ári og hann segir að loðnan virðist vera stór og ætti að henta til frystingar til manneldis að því gefnu að engin áta sé í henni.

,,Við höfum séð stikkprufur hér um borð sem sýna allt niður í 31 stykki í kílóinu en við höfum líka séð 37 stykki og 45 stykki í kílóinu. Mér skilst að það hafi eitthvað verið fryst af afla Venusar NS sem kom aftur á miðin í gær og til standi að reyna frystingu á hluta þess afla sem við erum með. Það fer þó allt eftir því hvort áta er í loðnunni eða ekki,“ segir Albert en er rætt var við hann var Víkingur kominn með tæplega 1.100 tonna afla. Þar af skilaði gærdagurinn tæpum 700 tonnum.

,,Ég sé ekki enn á mælum hverju þetta síðasta hol skilar okkur en hvað sem því líður höldum við til hafnar á eftir,“ sagði Albert Sveinsson.

Víkingur er nú á leið til Vopnafjarðar og er áætlaður afli 1.500 tonn.

Deila: