Forsetinn heimsótti Sjávarklasann

Deila:

Forseti Íslands Herra Guðni Th. Jóhannesson heimsótti Hús sjávarklasans og kynnti sér ýmsa nýsköpun sem tengist sjávarútvegi og matvælaiðnaði.  Meðal annars kynnti hann sér hvernig fyrirtæki í klasanum eru að þróa heilsuefni og lyf úr prótínum hafsins, tæknibúnað fyrir veiðar og vinnslu, hönnun á skipum sem knúin eru með rafmagni og svona mætti lengi telja.

Á heimasíðu Sjávarklasans eru fleiri myndir birtar og má á þeim sjá að klasabúum þótti gaman að taka á móti Guðna sem gaf sér góðan tíma með fólkinu og var einstaklega almennilegur. Við erum stolt af því að hafa fengið hann í heimsókn.
Á þessari mynd er forsetinn með Hirti Emilssyni, framkvæmdastjóra Navis.

http://www.sjavarklasinn.is/heimsokn-forseta-islands/

 

Deila: