Svipaður afli en verðmætið minna

Deila:

Á árinu 2017 öfluðu skip Hraðfrystihússins Gunnvarar félagsins 11.979 tonna að verðmæti 2.630 milljóna króna samanborið við 12.114 tonna afla að verðmæti 3.131 milljón króna árið 2016.

Aflamagn skipanna er svipað og árið áður en aflaverðmæti lækkar um 16%.  Ástæða lægra  aflaverðmætis skýrist af mikilli styrkingar krónunnar, lækkandi hráefnisverði og löngu verkfalli sjómanna sem lauk 19. febrúar 2017.

  2017 2017 2016 2015
  Tonn Milljónir Milljónir Milljónir
Júlíus Geirmundsson 4.033 1.322 1.467 1.901
Páll Pálsson * 1.544 231 869 1.252
Stefnir 6.228 1.041 719 844
Valur og Örn 174 36 76 87
Samtals 11.979 2.630 3.131 4.084

 

* Páll Pálsson var í rekstri fram í lok júní, þá var hann seldur.

 

Deila: