Enn bilar Örfirisey

Deila:

Frystitogarinn Örfirisey RE er nú í höfn í Hammerfest í Norður-Noregi en þangað kom togarinn um helgina eftir að vart varð við enn eina bilunina í vélbúnaði skipsins. Sá frystitogarinn Kleifaberg ÓF um að draga Örfirisey til hafnar.

Herbert Bjarnason, tæknistjóri skipa HB Granda, segir í samtali við heimasíðu HB Granda að nú sé ljóst að eitthvað hafi misfarist þegar aðalvél Örfiriseyjar var tekin upp á vegum framleiðenda vélbúnaðarins fyrir áramótin. Það skýri einnig bilunina sem varð fyrir rúmri viku síðan.

,,Eftir að Örfirisey lét úr höfn síðasta föstudag var, eins og í sambærilegum tilfellum, fylgst vel með þeim búnaði sem gert hafði verið við og var ekki neitt athugavert að sjá. Á laugardagsmorgun varð síðan vart við mikinn hita í tímagírnum og var um leið drepið á aðalvél. Við skoðun kom í ljós að bilunin var sú sama og hafði valdið síðasta tjóni, þ.e.a.s. að lega á millitannhjóli var úrbrædd.”

Herbert segir að skipið hafi þá verið statt um 30 sjómílur norður af Hammerfest í Noregi og hafi Kleifabergið verið fengið til að draga skipð upp að landi þar sem dráttabátur tók við því og fór með það til hafnar í Hammerfest.
,,Þegar farið var að taka búnaðinn í sundur kom í ljós að orsakavaldurinn núna er bilun í þrýstilegu á kambásnum. Bilunin veldur því að ásinn getur færst langsum í vélinni og valdið óeðlilegri þvingun á tannhjólin í tímagírnum. Verið er að vinna í að meta tjónið en talið er að skipta þurfi um kambás ásamt öllum tannhjólum, legum og öxlum í tímagír,” segir Herbert Bjarnason.

 

Deila: