Styttist í hrognafrystingu

Deila:

,,Við rétt sluppum inn áður en snælduvitlaust veður skall á. Við hefðum ekki mátt vera seinna á ferðinni því þá hefðum við ekki komist inn í höfnina.” Þetta segir Albert Sveinsson, skipstjóri á Víkingi AK í samtali á heimasíðu HB Granda. Skipið kom til hafnar á Vopnafirði upp úr hádegi á miðvikudag með um 900 tonn af loðnu. Albert segir aflann hafa fengist í þremur köstum út af Skarðsfjöruvita í Meðallandsbugt.
,,Við fórum frá Akranesi laust fyrir kvöldmatarleytið á mánudag og ég átti allt eins von á því að það yrði haugabræla allan túrinn. Veðrið var þó ekki sérstaklega slæmt inni á Meðallandsbugtinni. Vissulega var dálítil kvika en hún olli engum vandræðum. Óveðurslægðin var svo að ná okkur en sem betur fer náðum við innsiglingunni áður veðrið náði hingað austur,” segir Albert.
Að sögn Alberts var þó nokkuð magn af loðnu í Meðallandsbugtinni.
,,Það er víða loðna á svæðinu en hún var hins vegar ekki í þykkum torfum. Við köstuðum þrisvar og loðnan var alveg uppi í yfirborðinu og niður á um fimm faðma dýpi. Þarna var botndýpið um 40 til 50 faðmar,” segir Albert en samkvæmt sýnum sem tekin voru úr aflanum er hrognafylling loðnunnar 16-18%. Aflinn fer til frystingar á Vopnafirði.
,,Það eru nokkrir dagar í að hrognafylling þessarar loðnu gefi tilefni til hrognaskurðar og frystingar á hrognum. Það er hins vegar loðna fyrir vestan sem er með mun meiri hrognafyllingu en þar, sem hún heldur sig, er búið að vera snarvitlaust veður marga undanfarna daga og það hefur því verið ómögulegt að stunda þar veiðar,” segir Albert Sveinsson.

 

Deila: