„Þetta juðaðist“

Deila:

Gullver NS kom til Seyðisfjarðar í vikubyrjun úr fyrstu veiðiferð ársins. Aflinn var tæplega 100 tonn og uppistaða aflans þorskur, ufsi og ýsa.

Að sögn Rúnars L. Gunnarssonar skipstjóra var veitt á hefðbundnum miðum skipsins, eða frá Berufjarðarál og norður í Seyðisfjarðardýpi. Rúnar segir að þokkalega vel hafi gengið að veiða –„ þetta juðaðist en það voru svo sem engin læti í þessu,“ sagði Rúnar í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar

Gullver hélt aftur til veiða um hádegisbil í gær. Vinnsla í frystihúsinu á Seyðisfirði hófst 3. janúar en fiskurinn sem byrjað var að vinna kom af Ljósafelli SU.

 

Deila: