Margir smábátar á sjó

Deila:

Smábátaeigendur hafa tekið veðurblíðunni fagnandi.  Fjöldi báta er þessa dagana á sjó í Faxaflóa og við Reykjanes eins og sjá má á skjáskoti af vef Marine Traffic frá í gær.

„Veiðar á handfæri eru nú annað árið í röð með miklum ágætum.  Í fyrra komust menn á bragðið og fór aflinn á fyrstu 16 dögunum í mars 2016 úr 174 tonnum í 437 tonn sem er nánast upp á tonn það sama og veiðst hefur í ár.

Mikill hluti þessa afla hefur verið seldur á fiskmörkuðunum og er meðalverðið nú 227 kr/kg en var í fyrra 215, 5% hækkun milli ára,“ segir á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda.

 

Deila: