Trefjar afgreiða nýjan 30 tonna Cleopatra 50 bát til Frakklands

Deila:

Jean Pierre Vaillant útgerðarmaður frá Frakklandi fékk núna á dögunum afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 50 frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Nýji báturinn heitir Kalon Ísland. Báturinn er 15metrar á lengd og mælist 30 brúttótonn.

Báturinn á heimahöfn í Le Conquet sem er á vestasta odda Bretónskagans i Frakklandi.  Báturinn er útbúinn til neta og gildruveiða.  Jean Pierre Vaillant verður skipstjóri á bátnum.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Caterpillar C18 tengd ZF 665 A-gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno. Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til Neta og gildruveiða.  Veiðibúnaður kemur frá Frakklandi.

Lífbátar og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Zodiac. Rými er fyrir allt að 41 stk. 460 lítra kör í lest.  Í bátnum er upphituð stakkageymsla.  Stór borðsalur er í brúnni.  Svefnpláss er fyrir fimm í lúkar auk fullkominnar eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp. Báturinn er útbúinn til lengri útiveru ef þarf og aðbúnaður um borð fyrir áhöfn í takt við það.

Báturinn var fluttur til Rotterdam núna á dögunum og siglt þaðan til heimahafnar í Frakklandi.  Hann hefur þegar hafið veiðar.

 

 

Deila: