Strandveiðar verði samfelldar

Deila:

Forsvarsmenn LS sátu fyrir svörum hjá atvinnuveganefnd Alþingis.  Á fundinum var farið yfir frumvarp nefndarinnar um strandveiðar.

„Góður hljómur var á fundinum þar sem LS lagði m.a. áherslu á að í fyrirhugaðri tilraun með nýtt veiðikerfi í sumar yrðu veiðarnar að vera samfelldar.  12 dagar í hverjum mánuði frá 2. maí til og með 30. ágúst.  Það að hafa hugsanlega ólympískar veiðar í ágúst yrði gegn megin markmiðum frumvarpsins, að gera veiðarnar öruggari.   Auk þess lagði LS áherslu á að afli í öðrum tegundum en þorski teldist ekki inn í hámarksafla hvers báts, þ.e. kæmi til viðbótar skammtinum,“ segir á heimasíðu LS.

Nefndin hefur nú málið til umfjöllunar, m.a. að fara yfir fjölmargar umsagnir sem borist hafa.

 

Deila: