Ásökunin kemur á óvart

Deila:

Ég vill taka fram að á mínum 49 ára ferli til sjós, þar af yfir 34 ár sem skipstjóri, hef ég aldrei verið sakaður um hafa brotið af mér í starfi á neinn hátt. Þessi veiðiferð átti að vera sú síðasta á ferlinum og eru það mér mikil vonbrigði að verða fyrir þessum ásökunum nú.“

Svo segir í yfirlýsingu frá Arngrími Brynjólfssyni skipstjóra Heinaste, sem hefur verið ásakaður um landhelgisbrot við veiðar við strendur Namibíu.  Yfirlýsingin frá því í gær í heild er svohljóðandi:

„Skipið Heinaste kláraði löndun í fyrradag. Eftir að skipið hafði klárað löndun var ég boðaður til fundar við Fiskistofu Namibíu sem stýrir veiðum í landinu. Þar komu fram ásakanir þess efnis að skipið hefði farið inná á lokað svæði til veiða.

Ég vill taka fram að á mínum 49 ára ferli til sjós, þar af yfir 34 ár sem skipstjóri, hef ég aldrei verið sakaður um hafa brotið af mér í starfi á neinn hátt. Þessi veiðiferð átti að vera sú síðasta á ferlinum og eru það mér mikil vonbrigði að verða fyrir þessum ásökunum nú.

Mér vitandi hefur skipið ekki verið sakað um brot af þessu tagi áður og kemur ásökunin sjálfum mér á óvart enda er þess gætt af kostgæfni að veiða aldrei á þeim svæðum sem eru lokuð hverju sinni.

Allajafna þegar skip er sakað um að hafa veitt innan lokaðs svæðis í lögsögu Namibíu er skipstjóri leiddur fyrir dómara og sleppt samdægurs. Vonast ég til að það taki ekki langan tíma að leiða málið til lykta og eftir því sem ég kemst næst hefur öllum málum af þessu tagi lokið með sektargreiðslu teljist það sannað að skip hafi í raun stundað veiðar innan lokaðs svæðis.

Langt var liðið á daginn þegar samtalið við Fiskistofu fór fram. Það tókst því ekki að koma málinu fyrir dómara samdægurs og þurfti ég því að gista fangageymslur eina nótt. Í gærmorgun fór málið svo fyrir dómara, mér var sleppt og vonast ég til þess að málið leysist endanlega innan skamms.“

Virðingarfyllst, Arngrímur Brynjólfsson

Ljósmynd Þorgeir Baldursson

 

Deila: