Rækju hnignar við Snæfellsnes

Deila:

Hafrannsóknastofnun ráðleggur að leyfðar verði veiðar á 442 tonnum af rækju við Snæfellsnes á tímabilinu frá 1. maí 2018 til 15. mars 2019. Það er umtalsverð lækkun á veiðiheimildum frá því í fyrra og mörg ár þar á undan. Í fyrra var leyfilegur afli 698 tonn og mestur 1.000 tonn fyrir sex árum.

Ráðgjöfin byggir á niðurstöðum könnunar sem fram fór dagana 16. – 20. apríl s.l. við Snæfellsnes á Bjarna Sæmundssyni RE 30. Könnunin leiddi í ljós að stofnvísitala rækjustofnsins á svæðinu hefur lækkað undanfarin tvö ár og hefur ekki mælst lægri frá árinu 2004. Stærð rækju í Breiðafirði var 141 stk/kg en rækjan er oft smærri í Kolluál og taldist 181 í kílói. Lítið var af fiski á slóðinni.
Nánari upplýsingar um niðurstöður stofnmælingarinnar, veiðar og ráðgjöf má nálgast hér og Forsendur ráðgjafar má nálgast hér.

 

 

Deila: