Gullver með góðan afla

Deila:

Gullver NS kom til Seyðisfjarðar sl. sunnudag með 104 tonn af blönduðum afla. Um  helmingur aflans var þorskur en hinn helmingurinn ýsa, ufsi og karfi. Skipstjóri á Gullver í þessari veiðiferð var Rúnar Gunnarsson og segir hann að vel hafi gengið að veiða.

„Við vorum í Lónsbugt og Berufjarðarál og veiðin gekk ágætlega. Þetta eru okkar hefðbundnu mið. Við fórum hins vegar fjóra túra á Selvogsbanka fyrir hrygningarstopp og einn túr eftir stoppið og þar fékkst ágætur afli,“ segir Rúnar í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Drjúgur hluti af afla Gullvers fer til vinnslu í fiskvinnslustöð Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði. Þar eru framleiddir hnakkar og flök sem flutt eru út fersk til Frakklands og Þýskalands og síðan er þar fiskur unninn og frystur á Bandaríkjamarkað. Karfinn í afla Gullvers fór til vinnslu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.

Á myndinni er verið að landa úr Gullver NS. Í baksýn er Vilhelm Þorsteinsson EA að koma til löndunar með fullfermi af kolmunna. Ljósm. Ómar Bogason

 

Deila: