Fjarðanet reisir nýtt netaverkstæði
Merkilegur áfangi var í sögu Fjarðanets í vikubyrjun en þá var fyrsta skóflustungan tekin að nýju netaverkstæði fyrirtækisins í Neskaupstað. Það voru þeir Jón Einar Marteinsson, framkvæmdastjóri Fjarðanets, Steindór Björnsson og Jón Bjarnason, sem eru fyrrum verkstjórar hjá Fjarðaneti og Netagerð Friðriks Vilhjálmssonar í Neskaupstað, sem tóku fyrstu skóflustunguna. Báðir hafa þeir Steindór og Jón starfað um áratugaskeið hjá þessum fyrirtækjum en Jón lét af störfum fyrir nokkrum árum síðan. Frá þessu er greint á heimasíðu Hampiðjunnar.
Nýja netaverkstæðið verður 2.522 fermetrar að stærð með skrifstofum og starfsmannaaðstöðu. Það verður 85 metra langt og 26 metra breitt og mun það rýma netaverkstæði, gúmmíbátaþjónustu og nóta- og veiðarfærageymslu fyrir alls 26 nætur. Nýja húsið verður byggt á nýrri uppfyllingu austan við loðnubræðslu Síldarvinnslunnar. Framkvæmdir eru að hefjast á vegum Nestaks ehf í Neskaupstað og stefnt er að því að verkinu verði lokið 1. mars á næsta ári.
,,Tilkoma nýja verkstæðisins mun þýða algjöra byltingu í starfsemi Fjarðanets og þjónustumöguleikum fyrirtækisins og Hampiðjunnar á Austurlandi. Verkstæðið mun einnig þýða breytta og mun betri vinnuaðstöðu fyrir starfsmenn,“ segir Jón Einar. Hann bendir á að skip og veiðarfæri hafi stækkað mikið á síðustu árum og við því þurfi að bregðast með stærra húsnæði og öflugari þjónustu
,,Ein stór breyting verður sú að við munum geta geymt allar nætur og önnur veiðarfæri innanhúss í stað þess að nú eru næturnar geymdar úti. Þegar nýbyggingin verður tekin í notkun þá getum við boðið viðskiptavinum okkar upp á bestu fáanlegu þjónustu,“ segir Jón Einar en hann vekur jafnframt athygli á hagræðinu sem felst í því að hafa alla starfsemina á einni hæð.
,,Gamla verkstæðið var byggt á árunum 1964 og 1965. Það þótti stórt á sínum tíma en það er orðið of lítið miðað við kröfur dagsins í dag. Núna verður öll vinnan á einu gólfi í stað þess að í gamla verkstæðinu fer hún fram á þremur hæðum,“ segir Jón Einar Marteinsson.
Fjarðanet starfrækir alhliða veiðarfæraþjónustu í Neskaupstað, á Ísafirði og Akureyri. Í Neskaupstað og á Ísafirði rekur Fjarðanet skoðunarstöðvar fyrir gúmmíbjörgunarbáta og á Reyðarfirði rekur Fjarðanet þvottastöð fyrir fiskeldispoka.
Fjarðanet er dótturfyrirtæki Hampiðjunnar og til viðbótar við þessi þrjú netaverkstæði starfrækir Hampiðjan tvö netaverkstæði til viðbótar undir eigin nafni í Vestmannaeyjum og Reykjavík.
Á myndinni er fyrsta skóflustunga að nýju netagerðinni tekin. Jón Einar Marteinsson framkvæmdastjóri fyrir miðju. Til vinstri er Jón Bjarnason netagerðarmeistari og Steindór Björnsson netagerðarmeistari er til hægri. Ljósm. Hákon Ernuson