Nóg af gera hjá Gæslunni

Deila:

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafði í nógu að snúast í gær. Landhelgisgæslunni barst tilkynning laust fyrir klukkan ellefu um morguninn um að eldur væri laus í strandveiðibáti sem staddur var á veiðum úti fyrir Patreksfirði. Þyrla Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út ásamt björgunarbátum á svæðinu. Að auki voru bátar í grenndinni beðnir um að halda á staðinn. Skömmu síðar var ljóst að engin hætta væri á ferðum og því var aðstoð viðbragðsaðila afturkölluð. Báturinn sigldi fyrir eigin vélarafli til Patreksfjarðar.

Einungis tæpum tuttugu mínútum síðar, klukkan 11:16, barst annað neyðarkall frá strandveiðibáti og aftur var tilkynnt um eld um borð. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kallaði þyrluna út enn á ný. Báturinn var á veiðum nærri Grímsey en sá sem var um borð náði sjálfur að slökkva eldinn. Aðstoð þyrlunnar var afturkölluð og báturinn sigldi fyrir eigin vélarafli til Grímseyjar.

Á öðrum tímanum í gær barst beiðni um aðstoð frá vélarvana báti sem staddur var úti fyrir Seyðisfirði. Björgunarsveitin á Seyðisfirði var kölluð út og fór á staðinn til aðstoðar. Þá barst sömuleiðis tilkynning frá vélarvana báti úti fyrir Patreksfirði skömmu fyrir klukkan 15 í gær. Stjórnstöðin hafði samband við nálæga báta og hélt einn til aðstoðar. Sjósókn var nokkuð góð en um 500 skip og bátar voru í fjareftirlitskerfum Landhelgisgæslunnar.

 

Deila: