Ottó afhentur

Deila:

Gengið hefur verið frá afhendingu ísfisktogarans Ottós N. Þorlákssonar til Ísfélags Vestmannaeyja hf. Skipið mun halda nafni sínu áfram hjá nýjum eigendum en fær einkennisstafina VE-5.

Salan á Ottó er liður í endurnýjun á fiskiskipaflota HB Granda. Hið nýja og glæsilega skip, Viðey RE 50, kom í stað Ottó og hóf veiðar í byrjun júní.

Ottó N. Þorláksson hefur verið farsælt aflaskip. Það var smíðað í Stálvík í Garðabæ árið 1981. Skipstjóri hefur verið Jóhannes Ellert Eiríksson en hann tók við togaranum fyrir 24 árum og er nú skipstjóri á Viðey.
Myndin er tekin við afhendingu skipsins.

Deila: