Tvö af fjórum atriðum ekki til skoðunar

Deila:

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda og aðaleigandi Brims hf. hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna frétta um að Samkeppniseftirlitið hafi til skoðunar kaup hans á hlut í HB Granda í vor og Ögurvík árið 2016. Fjallað er um yfirlýsinguna á visir.is á eftirfarandi hátt:

„Samkeppniseftirlitið hefur kaup Brims hf. á hlutabréfum í HB Granda í athugun og sendi félögunum af því tilefni erindi í júlí á þessu ári. Þar kemur fram að Samkeppniseftirlitið skoðar fjögur atriði.

Í fyrsta lagi hvort tilkynningarskyldur samruni hafi átt sér stað þegar Brim hf. eignaðist þann 4.maí 34% hlut í HB Granda. Það er enn í skoðun. Í öðru lagi hvort það standist 10.gr. samkeppnislaga að aðaleigandi Brims hf. sé forstjóri HB Granda. Það er enn í skoðun. Í þriðja lagi hvort að stjórnarseta aðaleigandi Brims hf. í stjórn Vinnslustöðvarinnar brjóti gegn 10.gr. samkeppnislaga. Það er rangt að Guðmundur Kristjánsson hafi í vor verið í stjórn Vinnslustöðvarinnar og þarfnast því ekki frekari skoðunar. Í fjórða lagi er athugað hvort að tilkynningaskyldur samruni hafi átt sér stað þegar Brim hf. keypti allt hlutafé í Ögurvík árið 2016. Samskipti áttu sér stað við Samkeppniseftirlitið á þeim tíma og var það sameiginleg niðurstaða þá að þessi viðskipti væru ekki tilkynningaskyld og er það atriði ekki lengur til skoðunar.“

Þá rifjar Guðmundur upp að í viðtali við Morgunblaðið hafi hann sagt að eðlilegt sé að eftirlitsstofnanir fylgist með viðskiptalífinu. Hann sé enn þeirrar skoðunar.

Mál þetta var til umfjöllunar í fjölmiðlum í byrjun júlí á þessu ári og þá sagði Guðmundur í viðtali við Morgunblaðið að eðlilegt væri að eftirlitsstofnanir væru að fylgjast með viðskiptalífinu og er hann enn þeirrar skoðunar. „En vegna forsíðufréttar Fréttablaðsins má geta þessa að stjórnarformaður Fréttablaðsins er einnig lögmaður meirihlutaeigenda Vinnslustöðvarinnar  í Vestmannaeyjum hf. og varaformaður stjórnar VSV,“ skrifar Guðmundur.“

 

Deila: