Valka ræður til sín þrjá nýja stjórnendur

Deila:

Auður Ýr Sveinsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarframkvæmdastjóri Völku ehf. Hún hefur undanfarin tvö ár stýrt rekstrarsviði fyrirtækisins. Auður hefur víðtæka reynslu úr hinu alþjóðlega viðskiptaumhverfi og starfaði áður í tíu ár sem yfirmaður gæðastjórnunar, til að mynda við straumlínustjórnun og innri samskipti hjá álveri Rio Tinto í Straumsvík.

Valka Auður

Ennfremur hefur Auður Ýr starfað fyrir evrópska gæðastjórnunarfélagið EFQM til margra ára. Hún situr í stjórn Kvenna í sjávarútvegi og Norsk-íslenska viðskiptaráðsins. Sem aðstoðarframkvæmdastjóri mun Auður leiða daglegan rekstur Völku og halda utan um mannauðsmál, stefnumótun og gæða- og öryggismála. Auður er með B.Sc. gráðu í sjávarvísindum frá Coastal Carolina University og M.Sc. í umhverfisefnafræði frá University of Maryland í Bandaríkjunum.

Valka Egill

Egill Sveinbjörn Egilsson hefur verið ráðinn í starf vörustjóra vél- og hugbúnaðar

Egill Sveinbjörn Egilsson hefur lengst af starfað við vöruþróun hjá Össuri á alþjóðlegum vettvangi, eða allt frá árinu 2001 og leitt þar verkefni og teymi. Egill sat í framkvæmdastjórn rannsóknar- og þróunardeildar Össurar og á þátt í fjölmörgum einkaleyfum sem liggja að baki vörulínum fyrirtækisins. Hann kom að stofnun Hönnunarmiðstöðvar Íslands árið 2007, tók virkan þátt í uppbyggingunni, sat þar í stjórn og var formaður stjórnar á árunum 2014 til 2016.

 

Egill hefur komið að fjölmörgum verkefnum og nefndarstörfum er viðkemur hönnun á Íslandi, setið í stjórn Félags vöru- og iðnhönnuða og gengt þar formennsku. Einnig hefur hann starfað um árabil í fagráði Tækniþróunarsjóðs og kennt við Listaháskóla Íslands. Egill útskrifaðist með BA gráðu frá Design Academy Eindhoven í Hollandi árið 2001 og MBA frá Háskóla Íslands árið 2010.

 

Valka Guðjón

Guðjón Ingi Guðjónsson hefur verið ráðinn svæðissölustjóri

Guðjón Ingi Guðjónsson hefur víðtæka reynslu úr sjávarútvegi og hefur lengst af unnið að framleiðslu-, sölu- og markaðsmálum. Guðjón starfaði um árabil sem innkaupa- og sölustjóri hjá Sölusambandi íslenskra fiskframleiðenda og að gæða- og framleiðslumálum hjá Nord-Morue, dótturfélagi SÍF í Frakklandi.

 

Hann var áður framkvæmdastjóri útflutningsfyrirtækisins Sirius og sölustjóri hjá bæði Bacco Seaproducts og Sæporti. Guðjón er menntaður útvegstæknir frá Tækniskóla Íslands og tækniteiknari frá Iðnskólanum á Akureyri.

 

Um Völku

Valka er hátæknifyrirtæki í sjávarútvegi sem hannar og framleiðir framúrskarandi lausnir fyrir fiskvinnslur um allan heim. Fyrirtækið var stofnað árið 2003 og hefur frá upphafi einblínt á að auka afköst, bæta nýtingu og meðhöndlum hráefnis hjá viðskiptavinum með því að auka sjálfvirkni og notar til þess nýjustu tækni hverju sinni. Hjá Völku starfa um áttatíu sérhæfðir starfsmenn í því að hanna og framleiða kerfislausnir fyrir fiskvinnslur á landi og sjó.

 

Deila: