Sjávarklasinn 6 ára

Deila:

Nú eru liðin 6 ár frá því að Hús sjávarklasans opnaði dyr sínar í fyrsta sinn. Fyrstir til að koma í húsið voru 3X, ThorIce, Pólar Togbúnaður, Novo Food, Dis og Sjávarútvegsþjónustan.

„Gaman er að segja frá því að einungis tvö þessara fyrirtækja hafa flutt starfsemi sína og var það vegna stækkunar hjá þeim. Fljótlega eftir opnun var fyrsta frumkvöðlasetrið sett á laggirnar með aðstoð dyggra stuðningsfyrirtækja sem voru og eru ennþá Brim, Icelandair Cargo, Eimskip og Mannvit. Mörg fyrirtæki sem byrjuðu sem hugmyndir í frumkvöðlasetrum Sjávarklasans hafa náð miklu flugi og eru í dag orðin með stærri fyrirtækjum innan okkar raða.

Á þessum sex árum hefur mikið vatn runnið til sjávar og núna eru yfir 70 fyrirtæki í húsinu og um 120 starfsmenn,“ segir á heimasíðu Sjávarklasans

Deila: