Afdrifaríkar afleiðingar fyrir Vestfirði

Deila:

„Fiskeldi á Vestfjörðum er að verða burðarás atvinnulífs á Vestfjörðum. Vanhugsaðar stjórnvaldsaðgerðir með afturköllun starfs- og rekstrarleyfa fiskeldisfyrirtækja hafa valdið ótta, óöryggi og reiði íbúa á Vestfjörðum. Sú atburðarás, ef ekkert verður að gert, mun hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir Vestfirði og samfélagið þar til frambúðar.“

Svo segir í yfirlýsingu stjórnar Verkalýðsfélags Vestfjarða vegna afturköllunar starfs- og rekstraleyfa fiskeldisfyrirtækja á Vestfjörðum. Þar segir ennfremur:

„Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga fordæmir slíkar aðgerðir og mun ekki sætta sig við slík hryðjuverk og kallar eftir samfélagsábyrgð þeirra sem standa að slíkum ákvörðunum.

Með ógildingu starfs- og rekstrarleyfa eru allar líkur á að rekstargrundvöllur fiskeldis á Vestfjörðum sé brostinn að auki eru önnur framtíðaráform í uppbyggingu á laxeldi á Íslandi í algjöru uppnámi.

Að svipta fyrirtækin starfs- og rekstrarleyfi setur störf um 300 einstaklinga í bráða hættu með tilheyrandi skaða fyrir byggð á Vestfjörðum.  Ef umrædd rekstrar- og starfsleyfi eru ekki fyrir hendi er rekstargrundvöllur fyrirtækjanna brostinn og líklegt að öllum starfsmönnum verði sagt upp.

Það er áfall fyrir íbúa og atvinnulíf á Vestfjörðum að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafi hafnað beiðni fiskeldisfyrirtækja á sunnanverðum Vestfjörðum um frestun réttaráhrifa og fellt úr gildi starfs- og rekstrarleyfi fyrirtækja sem eru lífæðar atvinnu á sunnanverðum Vestfjörðum

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga krefst þess að Alþingi og ríkisstjórn grípi inn í og tryggi að illa ígrundaðar stjórnvaldsaðgerðir kippi ekki stoðunum undan  rekstri fiskeldisfyrirtækja  á Vestfjörðum.“

 

Deila: