Mikil síldveiði fyrir austan

Deila:

,,Það er búin að vera mjög góð síldveiði frá því að veiðarnar hófust. Það er mikið að sjá og það virðist vera mikið af síld á ferðinni,” sagði Theódór Þórðarson, skipstjóri á Venusi NS, er heimasíða HB Granda náði tali af honum nú um miðjan dag í gær. Þá var búið að ganga frá síðasta holinu og ferðin til heimahafnar á Vopnafirði var nýhafin.

Að sögn Theódórs var leiðinlegt veður þá þrjá daga sem skipið var á veiðum. Stöðug kvika og þegar verst lét hörkubræla.

,,Við tókum fimm hol og aflinn er rúmlega 1.000 tonn. Síldin hagar sér þannig að hún dýpkar á sér yfir daginn. Fer jafnvel niður fyrir 200 faðma. Svo þegar aðeins fer að skyggja kemur hún upp, allt upp á 30 metra dýpi, og þá er þægilegast fyrir okkur að eiga við hana,” segir Theódór en að hans sögn er síldin stór og falleg, 380 til 400 grömm að þyngd, og aukaafli er enginn.

,,Við erum núna í þriðja síldartúrnum og síldin hefur haldið sig utar síðustu dagana. Þar, sem við hættum veiðum, voru um 130 mílur í Norðfjarðarhorn og ég reikna því ekki með því að koma til Vopnafjarðar fyrr en um átta leytið í fyrramálið,” sagði Theódór Þórðarson í gær.

Deila: