Fjordvik í flotkvínni

Deila:

Stór göt eru á botni sementsflutningaskipsins Fjordvik sem strandaði við Helguvík í byrjun mánaðarins. Gert verður við skipið til bráðabirgða en stefnt er að því að flytja það frá landinu með skipaflutningaskipi í næsta mánuði.

Fjordvik var komið á þurrt í flotkví í Hafnarfirði síðastliðinn fimmtudag þar sem skipið hefur verið skoðað. Mjög miklar skemmdir eru á botni skipsins eftir að það lamdist við grjótgarð Helguvíkurhafnar í viku samkvæmt frétt af visir.is.

Olía enn hreinsuð

Ásbjörn Helgi Árnason, skipatæknifræðingur hjá Vélsmiðju Orms og Víglundar sem rekur flotkvína í Hafnarfirði, segir að verið sé að meta hversu mikið þarf að gera við Fjordvik svo það geti flotið úr kvínni.
Ásbjörn segir að allur sjór sé farinn úr vélarrúmi Fjordvik. Hann segir að enn sé verið að olíuhreinsa skipið.
Komið hefur fram að 1600 tonn af sementi eru í lestum skipsins. Ásbjörn segir að líklega verði ekki hreyft við farminum.

Á myndinni er Fjordvik í þurrkvínni í Hafnarfirði. Ljósmynd Hjörtur Gíslason

Deila: