Betri afkoma ISI og skráning á aðalmarkað 

Deila:

Stjórn Iceland Seafood International hefur ákveðið að félagið hefji undirbúning að skráningu á aðalmarkað Kauphallar Íslands árið 2019. Félagið hefur verið skráð á First North markað síðan 25 maí árið 2016 en markmiðið með skráningu félagsins á þeim tíma var að breikka eigendahópinn og stuðla að aukinni sókn félagsins.

Helgi Anton Eiríksson.

,,Það er rökrétt skref fyrir félagið sem stækkað hefur mikið síðustu árin að hefja undirbúning á skráningu félagsins á aðalmarkað.  Með því fjölgar í hópi hluthafa og á sama tíma styður það við áframhaldandi vöxt félagsins,2 sagði Helgi Anton Eiríksson, forstjóri Iceland Seafood International.

Einnig hefur verið gefin út uppfærð afkomuspá félagsins fyrir 2018 en afkoman er betri en fyrri spá gerði ráð fyrir.

Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta 2018 (e. normalized PBT for 2018)  er áætlaður    €6.8m – €7.3m samanborið við €6.1m – €6.6m í fyrri spá.   Hagnaður af reglulegri starfsemi á heilsársgrunni fyrir skatta 2018 (e. proforma normalised PBT for 2018) er áætlaður €10.4m – €10.9m samanborið við €9.6m – €10.6m í fyrri spá.

,,Áætlanir okkar um að styrkja starfsemi félagsins hafa gengið eftir á árinu. Við höfum  fjárfest í fyrirtækjum í virðisaukandi starfsemi  bæði á Írlandi og á Spáni en afkoma virðisaukandi eininga samstæðunnar hefur verið umfram áætlanir. Okkar skýra stefna, góða starfsfólk og sterku samstarfsaðilar hafa lagt grunn að áframhaldandi kröftugum vexti félagsins.” sagði Helgi Anton Eiríksson, forstjóri Iceland Seafood International.

 

 

Deila: