Gullkarfi um allan sjó

Deila:

„Það er gríðarlegt magn af gullkarfa um allan sjó og ég forðast að hugsa þá hugsun til enda hvað ógöngum við værum í ef við sýndum ekki nauðsynlega varkárni,“ segir Kristján E. Gíslason (Kiddó), skipstjóri á ísfisktogaranum Viðey RE, en skipið landaði í Reykjavík fyrir helgi. Aflinn var um 110 tonn og fékkst bróðurparturinn síðasta sólarhringinn á Eldeyjarbanka. Rætt var við Kristján á vef Brims.

Bara rok fyrir vestan
„Ef það er einhver eftirsjá þá hefði ég gjarnan viljað vera kominn suður sólarhring fyrr,“ segir Kiddó en hann segist hafa byrjað veiðiferðina á Vestfjarðamiðum. „Þar var ekkert að hafa nema vind. Engin veiði, bara vindur og nóg af honum. Við byrjuðum í Víkurálnum. Þar hafði verið gott þorskskot í þrjá daga en þorskurinn var genginn hjá þegar okkur bar að garði. Það var gríðarlegt magn af gullkarfa alls staðar í Víkurálnum og eina leiðin til að stunda þarna veiðar var að sneiða hjá karfanum,“ segir Kiddó.
Frá Víkurálnum var haldið norður í Þverál en þar var sama sagan og í Víkurálnum. Bullandi bræla en enginn þorskur eða ufsi.
„Það er freistandi að halda að sá þorskur, sem orðið hefur vart við í Víkurálnum, sé hluti af göngu vestan úr hafi, í þessu tilviki sennilega frá Dohrnbankanum. Þetta er dæmigerður hrygningarþorskur, fjögurra til sex kílóa fiskur,“ segir Kiddó. Þetta er mat fleiri gamalreyndra togaraskipstjóra hjá Brimi líkt og fram hefur komið hér á heimasíðunni.

Glittir í vertíðarufsann
Viðey endaði veiðiferðina á Eldeyjarbankanum. „Við vorum einskipa lengst af. Við fengum góðan þorsk og svo sýnishorn af þessum stóra vertíðarufsa. Ég gef honum þrjár vikur til að komast vel inn í veiðina. Um miðjan mars er hans tími.“
„Enginn gullkarfi?”
„Jú, biddu fyrir þér. Við gætum ekki dregið trollið í klukkutíma án þess að allt endaði með ósköpum ef við færum ekki varlega,” segir Kristján í viðtalinu

Deila: