Samkeppniseftirlitið fellir niður athugun á máli HB Granda

Deila:

Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki séu forsendur til að aðhafast frekar í athugun sinni á því að breyting hafa átt sér stað á yfirráðum í HB Granda í skilningi 17. gr. samkeppnislaga við kaup Brims hf. á eignarhlutum í félaginu fyrr á þessu ári.

Hefur stofnunin því látið málið niður falla en það hefur verið í athugun frá 6.júli á þessu ári. Þetta kemur fram í bréfi Samkeppniseftirlitsins til HB Granda en efni þess var kynnt á stjórnarfundi í HB Granda í gær.

 

Deila: