„Mikill léttir“

Deila:

Hafrannsóknastofnunin mun hvorki þurfa að segja upp fólki né leggja rannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni. Eftir stíf fundahöld með sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og starfsfólki Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis hafa fundist leiðir til að draga úr fyrirhuguðum niðurskurði hjá Hafrannsóknastofnun.

„Þetta er mikill léttir fyrir stjórn og starfsfólk stofnunarinnar.

Eftir stendur að stofnunin þarf að takast á við hagræðingarkröfu sem tilgreind er í fjárlagafrumvarpi, líkt og aðrar stofnanir.

Áfram veður unnið með ráðuneytinu til að finna traustari leiðir til að fjármagna rekstur stofnunarinnar til framtíðar,“ segir í frétt frá Hafrannsóknastofnun.

 

Deila: