Kristín GK dregin til hafnar

Deila:

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni um aðstoð frá fiskiskipinu Kristínu GK síðdegis í gær en skipið var þá vélarvana um 30 sjómílur vest-norðvestur af Garðskaga. Varðskipið Týr var þá úti fyrir Keflavík og hélt þegar í átt að fiskiskipinu.

Áhöfn varðskipsins skaut línu yfir í skipið á tíunda tímanum í gærkvöldi og hélt að því búnu með það áleiðis til Hafnarfjarðar. Varðskipið kom með skipið til Hafnarfjarðar snemma í morgun en hafnsögubáturinn Hamar tók þá við og fylgdi því síðasta spölinn að bryggju.  Meðfylgjandi myndir eru teknar af Guðmundi St. Valdimarssyni.

Deila: