Stærsti einstaki samningur Slippsins

Deila:

Slippurinn Akureyri hefur gengið frá samningi um hönnun, framleiðslu og uppsetningu á vinnsludekki  um borð í nýjan frystitogara norsku útgerðarinnar Nergård Havfiske. Norska skipasmíðastöðin Vard sér um smíði á skipinu og mun Slippurinn hafa yfirumsjón með vinnsludekkinu og býður upp á heildarlausn ásamt undirvertökum eins og Intech, Marel, Baader og Holmek.

„Samningurinn við Nergård Havfiske er stærsti einstaki samningurinn sem Slippurinn hefur gert sem snýr að vinnsludekki eins fiskiskips og er mikil viðurkenning fyrir okkur á allan hátt. Við höfum verið í mikilli sókn á markaði fyrir vinnslubúnað í fiskiskip og landvinnslur á undanförnum árum og erum við mjög ánægð með að Nergård hafi valið okkur í þetta verkefni“ segir Eiríkur S. Jóhannsson framkvæmdarstjóri Slippsins á Akureyri.

Skipið er 80 metrar að lengd og 17 metrar að breidd og mun vinnsludekkið vera með vinnslulínu fyrir bæði bolfisk og rækju. Áætlað er að hið nýja fiskiskip verði tilbúið til veiða í febrúar á næsta ári.

Á undaförnum fimm árum hefur Slippurinn afhent sex millidekk í frystitogara, flest þessara verkefna eru unnin með félögum tengdum Samherja. Sú mikla þekking sem Samherji býr yfir við fiskveiðar og vinnslu hefur stóreflt allar lausnir sem Slippurinn býður nú uppá og hafa þessar lausnir vakið mikla eftirtekt í alþjóðlegum sjávarútvegi. Í þessu sambandi nægir að nefna að árið 2017 afhenti Slippurinn vinnsludekk í frystitogaranna Berlin NC 105 og Cuxhaven NC 100 fyrir Deutsche Fischfang Union og hefur reynsla útgerðarinnar af þessum millidekkjum verið sérstaklega góð.

Einnig má nefna að Slippurinn hefur einnig tekið að sér framleiðslu og umsjón á milldekkjum fyrir ísfisktogara. Slippurinn tók að sér umsjón með heildarlausn á vinnsludekki í ísfisktogarann Björg EA 7 fyrir Samherja í fyrra og hefur aflinn og aflameðferðin í skipinu verið fyrsta flokks.

„Þau verkefni sem við höfum verið að vinna að á undaförnum árum hafa komið gríðarlega vel út. Við höfum þróað okkar búnað og lagt meiri áherslu en áður að bjóða upp á heildarlausnir til okkar viðskiptavina. Þessi samningur við Nergård og Vard er því góður vitnisburður um þá jákvæðu þróun sem hér hefur átt sér stað og klár gæðastimpill fyrir Slippinn og okkar góða starfsfólk“ segir Eiríkur í viðtali við heimasíðuna.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Deila: