Varað við borgarísjaka

Deila:

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk tilkynningu í gærmorgun um að nokkuð stór og mikill borgarísjaki væri við mynni Eyjafjarðar. Landhelgisgæslan telur ástæðu til að vara sjófarendur við ísjakanum enda getur hann reynst varasamur, sérstaklega í myrkri.

Mikilvægt er að þeir sem leið eiga um svæðið séu meðvitaðir um staðsetningu jakans en töluvert hefur kvarnast úr honum. Í hádeginu var staðsetning hans: 66°08.89 18°28,98.

Deila: