Pompeo kynnti sér störf Gæslunnar

Deila:

Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fékk kynningu á stjórnstöð Nato á Keflavíkurflugvelli, sem rekin er af Landhelgisgæslunni, áður en hann fór af landi brott síðdegis á föstudag. Georg Kr. Lárusson og Jón B. Guðnason kynntu starfsemina á öryggissvæðinu en með í för voru einnig Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, og Geir H. Haarde, sendiherra Íslands í Washington.

Deila: