Ný Cleopatra 36 til Ålesund

Deila:

Nú á dögunum afhenti Bátasmiðjan Trefjar nýjan Cleopatra bát til Ålesunds í Noregi. Kaupandi bátsins er Kjetil Måløy sem jafnframt verður skipstjóri á bátnum.

Báturinn hefur hlotið nafnið Safir.  Safir er af gerðinni Cleopatra 36, 11 metra langur og mælist 14 brúttótonn.

Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 650 hp tengd ZF V-gír.  Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni Furuno.
Báturinn er einnig útbúin vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins.  Báturinn er útbúinn til netaveiða.
Veiðibúnaður kemur frá Noregi.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.

Rými er fyrir 15 stk 380 lítra kör í lest.  Fullkomin eldunaraðstaða auk borðsals er í lúkar.  Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar.  Salerni með sturtu er í stýrishúsi.
Báturinn hefur þegar hafið veiðar.

 

Deila: